Saga

Síðla hausts 2005 seldi ríkisstjórn Íslands 98.8% eignarhlut sinn í Landssíma Íslands til Skipta ehf. Í desember 2005 runnu þrjú fyrirtæki saman, þ.e. Landssími Íslands, Íslenska sjónvarpsfélagið og móðurfélagið Skipti ehf., og var nafni félagsins í kjölfarið breytt í Síminn hf. Í mars 2007 voru eftirfarandi tillögur stjórnar Símans samþykktar: Símanum var skipt upp í fjögur félög: Símann hf., sem er grunnrekstrareiningin, Fasteignarfélagið Jörfa ehf., Mílu ehf., sem á og rekur grunnnetið á Íslandi og Skipti hf, sem varð móðurfélag hinna þriggja. Skipulagsbreytingin tók gildi 1. nóvember 2006.

Mikilvægir áfangar í sögu Skipta og fyrirrennara þess:

  • 1906 - Sæstrengur lagður frá Skotlandi um Færeyar til austurstrandar Íslands.
  • 1932 - Fyrstu sjálfvirku símstöðvarnar á Íslandi.
  • 1962 - Scotice, nýr sæstrengur mill Íslands og Skotlands, vígður; telexþjónusta hefur göngu sína.
  • 1980 - Jarðstöðin Skyggnir fer í loftið og millilandasímtöl fara um gervihnattatengingu; bein símtöl til útlanda verða að veruleika.
  • 1984 - Fyrstu stafrænu skiptistöðvarnar taka til starfa.
  • 1985 - Vinna hefst við lagningu ljósleiðara kringum landið.
  • 1986 - NMT farsímakerfið kemur til sögunnar.
  • 1994 - GSM farsímanetið fer í loftið - nýr sæstrengur, Cantat-3, vígður - vinna hefst við lagningu ljósleiðara í götuskápa.
  • 1995 - Allar skiptistöðvar landsins stafrænar.
  • 1998 - Skilið milli síma- og póstþjónustu. Landssími Íslands hf. (síðar Síminn hf.) stofnaður og frjálsræði innleitt á fjarskiptamarkaði.
  • 1998 - Upphaf kapalsjónvarps.
  • 1999 - Upphaf á rekstri ADSL kerfis.
  • 2004 - Upphaf netsjónvarps (IPTV) og Landssíminn eignast íslensku sjónvarpsstöðina Skjáinn. Nýr sæstrengur, Farice 1, vígður.
  • 2005 - Landssími Íslands hf. einkavæddur með sölu ríkissjóðs á 98,8% hlutdeild sinni; nafni fyrirtækisins breytt í Síminn hf. í kjölfarið. Skjábíó markaðssett í Sjónvarpi Símans.
  • 2006 - Síminn kaupir Sirius IT. Stærsta fjárfesting Símans til þessa.
  • 2007 - Nýtt skipulag innleitt þegar Símanum er skipt upp í fjögur félög: Fasteignafélagið Jörfa ehf., Mílu ehf., Símann hf., og Skipti hf sem verður móðurfélag hinna þriggja.
  • 2007 - Skipti kaupa farsímafélagið Aerofone í UK, og fjarskiptafélögin Business Phone og Ventelo í DK. Auk þess var fyrirtækið On-Waves stofnað og upplýsingatæknifyrirtækið Sensa ehf keypt.
  • 2007 - Undirbúningur hlutafjárútboðs hafið í tengslum við fyrirhugaða kauphallarskráningu félagsins í OMX Nordic Exchange.
  • 2007 - Fjárfestingafélagið Jörfi ehf. selt til Exista properties.
  • 2008 - Í mars var félagið skráð í OMX Kauphöllina en afskráð stuttu seinna.
  • 2008 - Í mars voru fjarskiptafyrirtæki Skipta í Danmörku sameinuð undir heitinu Síminn DK.
  • 2009 - í ágúst var gengið frá sölu á öllum hlut Símans í breska fjarskiptafyrirtækinu Aerofone.

 

 

 


Tungumál