Beint í leiðarkerfi vefsins.
Síminn er stærsta fjarskiptafyrirtækið á Íslandi og rekur sögu sína aftur til ársins 1906. Þjónustuframboð Símans samanstendur af fastlínu, farsíma og gagnaflutningslausnum ásamt sjónvarpsþjónustu yfir ADSL. Síminn leggur áherslu á fræðslu, faglega ráðgjöf og þjónustulipurð í samskiptum þar sem markmiðið er að gera flókna hluti einfalda og notendavæna fyrir alla. Síminn býður þjónustu sína til einstaklinga og fyrirtækja.
Skjárinn er leiðandi fyrirtæki á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Með fullkomnustu tækni sem völ er á býður Skjárinn áhorfendum upp á gagnvirkt sjónvarp, fyrstir allra á Íslandi. Það þýðir að áhorfandinn getur pantað sér það efni sem hann vill horfa á og ráðið sinni dagskrá. Þessi þjónusta hófst síðla árs 2005 og hefur nú unnið sér fastan sess á þúsundum heimila. Skjárinn verður áskriftarsjónvarpsstöð frá 1. desember 2009 en hún býður upp á vinsæla innlenda og erlenda þætti, kvikmyndaleigu með frábæru úrvali mynda og mikinn fjölda erlendra sjónvarpsstöðva.
Míla byggir á aldagamalli starfsemi fjarskiptanets Símans sem lagt hefur grunn að öllum fjarskiptum á Íslandi. Kjarnastarfsemi Mílu er að byggja upp og reka fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi. Önnur fjarskiptafyrirtæki tengjast þessu neti í gegnum mismunandi lausnir. Hlutverk Mílu er að selja lausnir sínar til fyrirtækja og stofnana sem stunda fjarskiptastarfsemi. Míla sérhæfir sig m.a. í rekstri og ráðgjöf vegna fjarskiptakerfa, aðstöðuleigu fyrir upplýsingatæknifyrirtæki og ýmsa þjónustu við dreifikerfi.
Sensa er þjónustufyrirtæki með sérfræðiekkingu í netlausnum (e.networking). Áhersla er lögð á að uppfylla sífellt vaxandi þörf íslenskra fyrirtækja og stofnanna fyrir samkiptahætti og leiðir, sem uppfylla kröfur um áreiðanleika, öryggi og afköst. Fyrirtækið hóf starfsemi árið 2002 og er eina fyrirtækið á Íslandi sem hefur hlotið gullvottun frá Cisco Systems í þjónustu á netlausnum.
Radiomiðlun sérhæfir sig í sölu á fjarskiptalausnum fyrir sjávarútvegsgeirann ásamt uppsetningum á búnaði og viðhaldi. Vöruframboð félagsins samanstendur til dæmis af lausnum frá Statos, Globalstar, Iridium og Seatel.
TrackWell hugbúnaðarfyrirtæki hefur sannað sinn feril í að þróa öruggar hátækni lausnir fyrir fjarskiptaaðila, ríkisfyrirtæki og aðra stofnanir. Með aðaláherslu á staðbundnar hugbúnaðarlausnir fyrir fyrirtækja- og neytendamarkað, TrackWell hefur notið stöðurgs vaxtar frá því það var stofnað árið 1996. Sýn TrackWell er að vera alþjóðlega þekkt fyrirtæki í þróun staðbundinnar þjónustu fyrir þráðlaus net.
Staki er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni með áherslu á framleiðslufyrirtæki. Lausnir Staka spanna frá gagnasöfnun til skýrslugerðar, frá framleiðslugólfi til forstjóra með það meginmarkmið að hámarka virði viðskiptavinarins. Starfsfólk Staka hefur sérhæft sig í hugbúnaði frá Wonderware sem er eitt útbreiddasta hugbúnaðarkerfi í iðnaði. Hjá Staka er samhentur hópur hugbúnaðarsérfræðinga, tæknifræðinga og verkfræðinga sem myndar öflugt og framsækið þjónustufyrirtæki.