Starfsemi

Starfsemi á Íslandi

Á Íslandi starfar Skipti bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Stærsta fyrirtækið innan Skipta er Síminn, öflugasta fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Önnur fyrirtæki eru meðal annars Míla, sem á og rekur fjarskiptakerfi og Sjámiðlar, sem reka sjónvarpsþjónustu og upplýsingamliðlun. Á innanlandsmarkaði munu Skipti halda áfram að þróa þjónustu fyrirtækjanna með það að markmiði að halda forystunni á þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar.

Starfsemi erlendis

Á alþjóðamarkaði eru Skipti með rekstur á í Danmörku, Svíþjóð og Noregi, en starfsemi félagsins utan Íslands beinist alfarið að fyrirtækjamarkaði. Heildarfjöldi starfsmanna í erlendum fyrirtækjum var um 500 í árslok 2008 og námu tekjur af erlendum rekstri u.þ.b. 39% af heildartekjum Skipta árið á fyrstu 6 mánuðum ársins 2009.

Skipti og dótturfélög nýta þekkingu sína til þess að þjónusta fyrirtæki, þar sem áhersla er lögð á að þróa úrval þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa svipaðar þarfir og gera svipaðar kröfur og viðskiptavinir Skipta á Íslandi.


Tungumál