Skjárinn kaupir útvarpsstöðina Kanann 

03.01.2012

Skjárinn ehf., sem á og rekur Skjá Einn, Skjá Golf, Skjá Bíó og Skjá Heim hefur keypt útvarpstöðina Kanann af félaginu Skeifan 7 Eignarhald ehf. sem er í eigu Einars Bárðarsonar. Kaup Skjásins á Kananum eru liður í að styrkja miðlasamstæðuna og efla samkeppni á markaðnum. Kaninn fór í loftið í september árið 2009 og ná sendingar hans til 80% landsmanna.

"Við höfum verið að leita eftir tækifærum til þess að víkka út starfssemi Skjásins. Við rekum sjónvarpsstöð með fyrsta flokks afþreyingu, sporti og fræðslu  sem veitir öfluga samkeppni á þessum markaði. Undanfarið höfum við horft til útvarpsreksturs og Kaninn hefur náð góðum árangri.  Ég er sannfærður um að miðlarnir styrkist ennfrekar þegar þeir eru reknir undir sama hatti", segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins.

Útvarpstöðin flytur á næstum vikum í húsakynni Skjásins í Skipholti. Dagskráráherslur Kanans verða svipaðar og áður og hefur Einar Bárðarson verið ráðinn til að stýra útvarspsviði Skjásins.

Kaupverðið er trúnaðarmál en samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

 


Tungumál