Breytingar hjá Skiptum 

29.09.2011

Á síðustu mánuðum hefur verið unnið að stefnumörkun Skiptasamstæðunnar til framtíðar og samhliða hafinn undirbúningur að endurfjármögnun fyrirtækisins. Stefnumörkunin felur í sér að horfið verður frá þeirri útrás á erlenda markaði sem einkenndi reksturinn áður og einblínt á íslenska fjarskiptamarkaðinn, hagræðingu í rekstrinum og fjárfestingar í frekari uppbyggingu á fjarskiptakerfum.  Horft verður til samlegðaráhrifa milli dótturfélaganna eftir því sem heimilt er að teknu tilliti til ýmissa kvaða og skorða sem settar hafa verið af eftirlitsstofnunum. 

Skipti og helstu dótturfélög þeirra, Síminn, Míla og Skjárinn,  hafa ekki farið varhluta af áhrifum efnahagshrunsins á Íslandi.   Þannig hækkuðu erlend lán samstæðunnar mikið við fall íslensku krónunnar og þar að auki hafa tekjur á fjarskiptamarkaði dregist saman. Á sama tíma hefur markaðshlutdeild Símans minnkað vegna harðnandi samkeppni og vegna kvaða frá eftirlitsstofnunum.

Sem liður í þessum breytingum mun Míla flytja starfsemi sína að Suðurlandsbraut 30 en það var áður til húsa við Stórhöfða. Núverandi húsnæði Mílu verður framleigt eða skilað til leigusala.

Fækkun starfsfólks hjá Skiptum og dótturfélögum verður með þessum aðgerðum 45 og frá áætlun 2011 hefur því verið fækkað um 68 stöðugildi. Hjá Skiptum, Mílu, Símanum og Skjánum starfa nú 905 manns.

Nú mun  Skiptasamstæðan einbeita allri sinni fjárfestingargetu í uppbyggingu fjarskiptakerfis síns á Íslandi. Þegar hafa tæpar 800 milljónir verið lagðar í ljósnetsvæðingu og verið er að leggja lokahönd á tengingu um 42 þúsund heimila á höfuðborgarsvæðinu. Hert verður á þessari fjárfestingu og til viðbótar hafa Skipti og dótturfélög áform um að leggja allt að þremur milljörðum í að ljúka ljósnetsvæðingu um 47 þúsund heimila til viðbótar á suðvesturhorni landsins á næstu 2 árum. Ljósnetsuppbyggingin er hagkvæm leið til þess að bjóða öflugar tengingar til fólks með internet og gagnvirkt IP sjónvarp.

Ýmsum öðrum verkefnum hefur þegar verið hrundið af stað bæði til hagræðingar og tekjuaukningar og mun það leiða til rekstrarbata strax á þessu ári.   Nýlegar yfirlýsingar  Póst- og fjarskiptastofnunar um að aukið jafnvægi sé að komast á fjarskiptamarkaðinn sem mun þýða afléttingu ákveðinna hafta og kvaða sem hvíla á Skiptafyrirtækjunum  gefur einnig fyrirheit um að sækja megi fram í auknum mæli.

Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta:
„Í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á í íslenku efnhags- og viðskiptalífi viljum við nú færa reksturinn nær því sem áður var.  Ekki verður gengið svo langt að sameina aftur Símann og Mílu, heldur verða þau rekin áfram sem sjálfstæð félög innan Skipta ásamt Skjánum og dótturfélögum Símans. Síminn DK er ekki lengur skilgreint sem hluti af kjarnastarfsemi Skipta og verður því selt í fyllingu tímans.  Sama á við um On-Waves sem er í eigu Símans. Með þessum aðgerðum og breytingum vonumst við til að geta aukið arðsemi og verðmæti Skiptasamstæðunnar og auðveldað endurfjármögnun félagsins.“ 

Í tengslum við nýjar áherslur verður sett á laggirnar ný staða framkvæmdastjóra Tæknimála Skiptasamstæðunnar og mun Þór Jes Þórisson, núverandi framkvæmdsatjóri Tæknisviðs Símans taka við því starfi 1. október n.k.   Þór Jes verður ábyrgur fyrir stefnumörkun og samræmingu tæknimála samstæðunnar. Þór Jes hefur starfað hjá Símanum frá árinu 1986 að tækniverkefnum, vöruþróunar- og rannsóknarverkefnum, ásamt markaðs- og söluverkefnum. Hann hefur verið framkvæmdastjóri hjá Símanum frá lokum 1997. Þór Jes er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Nýr framkvæmdastjóri á Tæknisviði Símans verður Anna Björk Bjarnadóttir, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Einstaklingssviðs Símans til þriggja ára. Áður hafði hún verið forstöðumaður Lausna og síðar Sölu hjá Símanum. Í millitíðinni, árin 2007-2008, starfaði hún hjá Capacent sem stjórnunarráðgjafi. Þá var hún framkvæmdastjóri Þjónustusviðs hjá fjarskiptafélaginu TDC í Noregi á árunum 2000-2004. Anna Björk lauk sérhæfðu meistaranámi í stjórnun á fjarskiptamarkaði hjá TDC/Wharton og er með BS gráðu í íþróttafræðum.

 


Tungumál