Jákvæður viðsnúningur á afkomu Skipta 

25.08.2010

Skipti hafa birt uppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2010. Alls er um 2 milljarða króna jákvæður viðsnúningur á afkomu félagsins. Tap á fyrstu 6 mánuðunum nemur nú 6 milljónum króna en nam rúmum tveimur milljörðum króna í fyrra. Ástæðan er fyrst og fremst betri niðurstaða fjármagnsliða. Tekjur félagsins eru nokkurn veginn þær sömu og á sama tímabili í fyrra og fram kemur að vegna sölunnar á Sirius IT í Danmörku muni 3,3 milljarða söluhagnaður falla til  á seinni hluta ársins.

Nánar um  afkomu, lykiltölur og uppgjör má lesa hér.

 


Tungumál