Símaskráin komin út 

21.05.2010

Símaskráin komin út

Sýning á öllum 1.500 tillögunum sem bárust í forsíðusamkeppni Símaskrárinnar 2010 í vetur hefur verið opnuð á Já.is. Verðlaunatillagan „Mundu mig – ég man þig“ eftir þær Önnu Ingólfsdóttur rithöfund og Elísabetu Brynhildardóttur myndlistamann prýðir forsíðu Símaskrárinnar, sem kom út í dag. Sérstök aukaverðlaun voru ennfremur veitt fyrir „jákvæðustu tillöguna“.

 

Samstarf Önnu og Elísabetar hófst sl. haust þegar þær ákváðu að gera saman barnabók.. Ein af hugmyndunum sem kviknuðu tengdist gömlu minningabókunum og hinni hugljúfu vísu „Mundu mig – ég man þig“. „Þessi einlæga mynd er tekin úr minningabók frá 1971 þar sem tíu ára stúlka skrifar kveðju til vinkonu sinnar, eins og margar stúlkur á öllum tímum hafa sent til vina sinna í gegnum íslenskar minningabækur.

Auk þess að geyma um 400.000 símanúmer er Símaskráin full af fróðlegu efni sem getur komið sér vel í dagsins önn. Sem dæmi má nefna kort af öllum landshlutum, götukort af bæjarfélögum og ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem eru að skipuleggja ferðalög.  Símaskráin er umhverfisvæn og pappírinn í henni kemur úr sjálfbærum skógum. Blek, lím og pappír sem notað er í bókina er að öllu leyti niðurbrjótanlegt og algjörlega skaðlaust náttúrunni. Hvert eintak vegur um tvö kíló og er bókin 1.560 blaðsíður. Hin hefðbundna Símaskrá er afhent án gjalds en harðspjaldaútgáfan kostar kr. 700.

Hægt er nálgast Símaskrána  á fjölmörgum stöðum þ.m.t.  verslunum  Símans, afgreiðslustöðum Póstins og  á bensínstöðvum Skeljungs og Olís. Á bensínstöðvunum og hjá Símanum við Ármúla eru einnig móttökugámar fyrir eldri Símaskrár.


Tungumál