Beint í leiðarkerfi vefsins.

Helstu niðurstöður:
• Sala jókst um 2% frá fyrra ári, nam 39,7 milljörðum króna samanborið við 39,0 milljarða árið áður.
• Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 8,7 milljörðum króna samanborið við 9,0 milljarða árið áður. EBITDA hlutfallið var 22%.
• Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 9,1 milljarði króna, samanborið við 10,1 milljarð árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 6,9 milljörðum króna.
• Bókfært tap Skipta á árinu nam 10,2 milljörðum króna sem skýrist einkum af virðisrýrnun óefnislegra eigna, sem nam 7,3 milljörðum króna, og gengisþróun íslensku krónunnar.
• Fjármagnsgjöld voru 7,5 milljarðar króna en þar af nam gengistap 2,1 milljörðum króna.
• 37% af tekjum samstæðunnar koma frá erlendri starfsemi félagsins samanborið við 32% árið áður
• Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 54,4 milljörðum um áramót en voru 51,1 milljarður árið áður.
• Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 21% og eigið fé er 25,5 milljarðar króna.
Brynjólfur Bjarnason forstjóri Skipta:
“Árið 2009 einkenndist af mikilli óvissu í rekstrarumhverfi félagsins. Afkoman af reglulegri starfsemi félagsins á árinu er góð miðað við aðstæður, handbært fé frá rekstrinum er áfram mjög sterkt og við erum stolt af því að skila tæpum 9 milljörðum króna í EBITDA. Dótturfélög samstæðunnar hafa náð að laga sig að breyttu rekstrarumhverfi og minnkandi eftirspurn og dregið hefur verið úr kostnaði. Tekjuaukningin milli ára skýrist af aukningu erlendra tekna sem nú eru um 37% af heildartekjum og hafa aldrei verið hærri. Gengi íslensku krónunnar veiktist enn á árinu og skýrir að hluta tap félagsins. Þá eru áætlanir okkar fyrir næstu ár varkárar, sem hefur í för með sér virðisrýrnun óefnislegra eigna sem skýrir stærstan hluta taps ársins. Við gerum ráð fyrir að aðstæður verði áfram erfiðar og teljum að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til geri Skipti vel í stakk búin til að takast á við þær aðstæður.“