Beint í leiðarkerfi vefsins.

Markaðsstjórar 400 stærstu auglýsenda landsins nefndu Símann oftast sem það fyrirtæki sem stóð sig best í markaðsmálum á síðasta ári samkvæmt könnun Capacent Gallup. Niðurstöður könnunarinnar voru kunngerðar á íslenska markaðsdeginum fyrir helgi. Er þetta í annað árið í röð sem Síminn hlýtur þessa viðurkenningu. Í úrtaki voru markaðsstjórar 400 stærstu auglýsenda samkvæmt auglýsingamarkaði Capacent Gallup.
Þá hlaut hlaut auglýsingastofan ENNEMM verðlaun fyrir bestu sjónvarpsauglýsinguna árið 2009, Netvara Símans - http://www.youtube.com/watch?v=VcCCykLNfjk. Einnig hlaut sama auglýsingastofa verðlaun fyrir bestu útvarpsauglýsinguna 2009 en hún var fyrir Skjá-Bíó.