Beint í leiðarkerfi vefsins.

Í ellefta skiptið í röð nær Sensa þeim áfanga að fá Customer Satisfaction Excellence viðurkenninguna frá Cisco. Fyrirtækjum hlotnast þessi viðurkenning eftir framúrskarandi árangur í þjónustukönnun sem Cisco gerir hjá viðskiptavinum Sensa. Undanfarin ár hefur Sensa fengið hæstu einkunn á Íslandi.
"Þessi viðurkenning hvetur okkur til að gefa ekkert eftir og hugsa stöðugt um að bæta okkur." segir framkvæmdastjóri Sensa Valgerður H. Skúladóttir. Sensa er stærsta og reynslumesta þjónustufyrirtæki á sviði samskiptalausna, og fremsti samstarfsaðili Cisco á Íslandi, eina fyrirtækið sem hefur hlotið Gold Partner vottun.