Beint í leiðarkerfi vefsins.

Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir á föstudag. Katrín Júlísdóttir, Iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Hugmyndahúsi háskólanna og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 10 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í níunda skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin.
Í umsögn dómnefndar um vef ja.is kom fram að "vefurinn þjóni hlutverki sínu vel, sé stílhreinn, einfaldur og vel skipulagður. Leitarvélin skilur íslensku í öllum beygingarmyndum, niðurstöður eru skilvirkar og mjög auðvelt er að gera greinarmun á því hvort leitað er að fólki eða fyrirtækjum. Kortaleit er til fyrirmyndar og má segja að vefurinn sé byltingarkenndur í aðgengi upplýsinga um íslenska staðhætti."
Þá hlutu m.ja.is og skjarinn.is einnig verðlaun sem bestu vefir í sínum flokki