Beint í leiðarkerfi vefsins.
Rannveig Rist hefur tekið við formennsku í stjórn Skipta hf. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag. Með formennsku Rannveigar er tryggð samfelldni í stjórn fyrirtækisins en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á rekstri þess. Rannveig hefur setið í stjórn Skipta og Símans frá árinu 2002 þegar fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins. Hún var formaður stjórnar frá 2002 til 2005 en hefur síðan verið varaformaður stjórnar. Lýður Guðmundsson lætur nú af formennsku en mun sitja áfram í stjórn Skipta.
Rannveig Rist: „Það er spennandi að taka aftur við sem formaður. Skipti er vel rekið fyrirtæki sem gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Fyrirtækinu hefur tekist vel að laga reksturinn að þeim samdrætti sem er í íslensku efnahagslífi og er því ágætlega í stakk búið til að takast á við þá krefjandi tíma sem nú eru. Fjarskipti og upplýsingatækni eru mikilvægar stoðir í atvinnulífinu og ég er sannfærð um að Skipti verði áfram í lykilhlutverki við uppbyggingu á þeim sviðum á Íslandi.“
Lýður Guðmundsson: „Það hefur verið gefandi að starfa með stjórnendum Skipta og dótturfélaga að uppbyggingu fyrirtækisins undanfarin ár. Það er mikil vinna framundan hjá okkur bræðrum við rekstur Bakkavarar og að ljúka því ferli sem Exista er í og því rétt að láta nú af stjórnarformennsku hjá Skiptum. Það er mikils virði fyrir Skipti að Rannveig skuli taka þetta verkefni að sér. Hún hefur mikla þekkingu á starfsemi fyrirtækisins og er einn farsælasti stjórnandinn í íslensku atvinnulífi.“