Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 19. mars voru hlutabréf Skipta tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands. Fljótlega eftir að viðskipti hófust barst tilkynning frá Exista hf. stærsta hluthafa félagsins, um að stjórn félagsins hefði ákveðið að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Skipta hf. Tilboð Exista hljóðaði upp á 6,64 krónur á hlut sem var sama verð og í nýafstöðnu hlutafjárútboði Skipta. Greitt var með nýjum hlutum í Exista sem voru verðlagðir í samræmi við lokagengi á OMX ICE þann 18. mars, sem var 10,1 króna á hlut.
Í tilkynningu frá Exista kom fram að ástæða tilboðs Exista væri sú að félagið teldi ekki vera grundvöll fyrir eðlilega verðmyndun með hlutabréf Skipta á markaði í ljósi niðurstöðu nýafstaðins hlutafjárútboðs og þeirra óvenjulega erfiðu markaðsaðstæðna sem ríktu.