Forsíða

Um Skipti

Skipti rekur fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni, á Íslandi og erlendis. Hlutverk Skipta er að sinna sameiginlegri þjónustu fyrirtækjanna á einum stað, með hagræði og sveigjanleika að leiðarljósi. Þannig skapar Skipti stjórnendum og starfsfólki dótturfélaganna svigrúm til þess að einbeita kröftum sínum að því að ná hámarksárangri í krefjandi rekstrarumhverfi.



Starfsemi

Á Íslandi starfar Skipti bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Stærsta fyrirtækið innan Skipta er Síminn, öflugasta fjarskiptafyrirtæki á Íslandi. Önnur fyrirtæki eru meðal annars Míla, sem á og rekur fjarskiptakerfi og Skjárinn, sem rekur sjónvarpsþjónustu. Utan Íslands eru Skipti með rekstur í Danmörku þar sem fyrirtækið á Síminn Dk. Þá starfar fyrirtækið On Waves alfarið utan Íslands.





Tungumál